Fara í innihald

Auglýsing

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Auglýsing fyrir þvottaefnið Geysir
Auglýsing fyrir þvottaduftið Geysir frá 1954

Auglýsing er notuð til að vekja athygli á vöru eða þjónustu og sannfæra þannig hugsanlega viðskiptavini um notagildi þess. Þar sem orðið einfaldlega merkir að gera eitthvað augljóst þá er hugtakið einnig notað yfir tilkynningar, svo sem atvinnuauglýsingar og í öðrum lögformlegum tilgangi, svo sem í Stjórnartíðindum eða í Lögbirtingablaðinu.

Það er hægt að auglýsa á hvaða þeim miðli sem nær til markhópsins og stjórnar hann yfirleitt hvernig og hvar auglýsingar birtast. Þær geta verið gefnar út í tímaritum, dagblöðum og á vefnum, birst í sjónvarpi, kvikmyndum og tölvuleikjum, nefnd eða spiluð í útvarpi og uppsettar á skiltum og plaggötum á stöðum þar sem mögulegir viðskiptavinir geta séð þær eða heyrt. Þær eru gjarnan hannaðar af auglýsingastofum sem eru ráðnar af þeim fyrirtækjum eða aðilum sem framleiða vöruna eða veita þjónustuna. Þegar vörumerkið er vel þekkt, þá þarf yfirleitt ekki mikið annað en að minna á hana til að auglýsa vöruna t.d. útfrá útlit, einkenni, eða hljóðstefi sem fólk tengir við vöruna.

Auglýsingaherferð (eða markaðsherferð) er þegar auglýsingar sem deila þema koma fram á mörgum miðlum til að vekja sem mesta athygli, og ganga þær oft út á að selja ákveðin vörumerki sem eru tengd við ákveðna ímynd eða lífsstíl eða koma á framfæri upplýsingum í einhverju átaki (t.d. verið var að sannfæra almenning um áhættur reykinga eða hvað mætti ekki sturta niður í klósettið).

  Þessi viðskiptafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.