Gústaf 2. Adólf
Útlit
(Endurbeint frá Gústaf Adolf 2.)
| ||||
Gústaf 2. Adólf | ||||
| Ríkisár | 30. október 1611 – 6. nóvember 1632 | |||
| Skírnarnafn | Gustav Adolf | |||
| Kjörorð | Ära vare den högste, de sinas tillflykt (latína: Gloria altissimo suorum refugio) Med Gud och de segerrika vapnen (latína: Deo et victricibus armis) Gud med oss (þýska: Gott mit uns) | |||
| Fæddur | 9. desember 1594 | |||
| Tre Kronor, Svíþjóð | ||||
| Dáinn | 6. nóvember 1632 (37 ára) | |||
| Lützen, Saxlandi, Heilaga rómverska ríkinu | ||||
| Gröf | Riddarahólmskirkjunni, Stokkhólmi, Svíþjóð | |||
| Undirskrift | ||||
| Konungsfjölskyldan | ||||
| Faðir | Karl 9. Svíakonungur | |||
| Móðir | Kristín af Holstein-Gottorp | |||
| Drottning | María Leónóra af Brandenborg (g. 1620) | |||
| Börn |
| |||
Gústaf 2. Adólf (9. desember 1594 – 6. nóvember 1632) var konungur Svíþjóðar frá 1611. Í sögu Svíþjóðar miðast upphaf stórveldistímans við valdatöku hans. Hann var sonur Karls hertoga og konu hans Kristínar af Holstein-Gottorp. Frændi hans, Sigmundur 3., Póllandskonungur, gerði áfram tilkall til sænsku krúnunnar og deilurnar um ríkiserfðir héldu áfram milli landanna. 1626 réðist Gústaf inn í Lífland og hóf með því pólsk-sænska stríðið (1626-1629) og í júní 1630 réðist hann inn í Þýskaland sem verndari málstaðar mótmælenda í þrjátíu ára stríðinu. Sænski herinn sneri stríðsgæfunni skjótt mótmælendum í hag en Gústaf sjálfur féll í orrustunni við Lützen tveimur árum síðar.[1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Dagur Þorleifsson (8. janúar 1983). „Gústaf Adólf og Wallenstein“. Þjóðviljinn. bls. 10–11; 27.
| Fyrirrennari: Karl 9. |
|
Eftirmaður: Kristín | |||