Kórall
| Kórall | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|
Diploria labyrinthiformis | ||||||
| Vísindaleg flokkun | ||||||
| ||||||
| Undirflokkar | ||||||
Kóraldýr (Fræðiheiti: Anothozoa) eru ein af þremur undirfylkingum í fylkingu holdýra, ásamt Medusozoa og Endocnidozoa. Hópurinn samanstendur af botnföstum hryggleysingjum í sjó og ísöltu vatni, svo sem sæfíflum, steinkórölum og sæfjöðrum. Nánast öll fullorðin kóraldýr eru föst við hafsbotninn, en lirfur þeirra fljóta um sem dýrasvif.
Grunneining fullorðinna dýra er holsepi, hvert dýr samanstendur af sívalningslaga bol sem efst hefur skífu með munni í miðjunni sem umkringdur er örmum. Sæfíflar lifa oftast stakir, en flest kóraldýr mynda þyrpingar sem verða til við það að nýir holsepar spretta út frá upphaflega dýrinu. Þyrpingar steinkóraldýra eru styrktar með efnum á borð við aragonít og geta tekið á sig ýmsar myndir. Kóraldýr eru með brennifrumur líkt og önnur holdýr.
Flokkurinn Anthozoa skiptist í tvo undirflokka: Hexacorallia, þar sem dýrin hafa sexfalda samhverfu, og Octocorallia, þar sem dýrin hafa áttfalda samhverfu.
Kóraldýr eru rándýr sem veiða bráð með örmum sínum. Margar tegundir afla sér viðbótarorku með hjálp einfruma þörunga sem búa í vefjum þeirra og stunda ljóstillífun. Þessar tegundir lifa á grunnsævi og margar þeirra eru kóralrifsmyndandi. Tegundir sem búa ekki yfir slíkum þörungum þurfa ekki á miklu ljósi að halda og lifa því yfirleitt á miklu dýpi.
Ólíkt öðrum holdýrum fara kóraldýr ekki í gegnum hveljustig í lífsferli sínum. Í stað þess losa þau sæðis- og eggfrumur út í vatnið. Eftir frjóvgun verða lirfurnar hluti af dýrasvifi. Þegar lirfurnar hafa náð fullum þroska setjast þær á hafsbotninn, festa sig við undirlagið og ganga í gegnum umbreytingu yfir í holsepa. Sum kóraldýr geta einnig fjölgað sér kynlaust, annaðhvort með knappskoti eða með því að brotna í sundur og þar með mynda nýja einstaklinga úr brotunum.