Fara í innihald

Lögmaður

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lögmaður er einnig nafn á íslensku stjórnsýsluembætti.

Lögmaður er lögfræðingur með málflutningsréttindi, það er að segja með réttindi til að flytja mál í dómsal. Almennt séð eru þeir taldir vera þeir einu sem mega flytja mál fyrir dómstólum með fáeinum undantekningum.[1][2]

Málflutningsréttindi

[breyta | breyta frumkóða]

Það eru þrjár gerðir af málflutningsréttindum sem lögmenn geta öðlast, en þau byggja hvert á öðru.[3]

Málflutningur fyrir héraðsdómi

[breyta | breyta frumkóða]

Lögfræðingar þurfa að standast sérstök námskeið og standast próf til að öðlast réttindi til málflutnings og þar með starfstitilinn að vera lögmaður. Námskeiðinu er skipt í tvo hluta sem enda báðir á prófum, og er tilgangur prófa fyrra námskeiðsins að tryggja að viðkomandi lögfræðingur hafi tileinkað sér næga þekkingu á íslenskum lögum til þess að geta stundað lögmannsstörf ásamt því að öðlast þekkingu og þjálfun á því að flytja mál fyrir dómi. Seinni hluti námskeiðs felur í sér verklegt próf.

Málflutningur fyrir Landsrétti

[breyta | breyta frumkóða]

Lögmaður sem hefur verið með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi í 5 ár og flutt í það minnsta 25 mál fyrir annað hvort héraðsdómi eða sérdómstóli getur öðlast réttindi til að flytja mál fyrir Landsrétti.

Málflutningur fyrir Hæstarétti

[breyta | breyta frumkóða]

Þegar lögmaður hefur flutt í það minnsta 15 mál munnlega fyrir Landsrétti og verið með þau réttindi í 3 ár, þá getur lögmaður öðlast réttindin til að flytja dómsmál fyrir Hæstarétti.

Málaflokkar

[breyta | breyta frumkóða]

Lögmenn sérhæfa sig yfirleitt í tilteknum málaflokkum sem tekin eru fyrir í dómssal:[4]

  • Almannatryggingaréttur
  • Almenn lögfræðiþjónusta
  • Barnaréttur
  • Barnaverndarréttur/ barnaverndarmál
  • Bygginga- og skipulagslöggjöf
  • Eignaumsýsla
  • Erfðaréttur
  • Evrópuréttur
  • Fasteignir
  • Félagaréttur
  • Fjármögnun/kaupleigusamningar
  • Fjarskiptaréttur
  • Flugréttur
  • Flutninga- og sjóréttur
  • Gerðardómar
  • Greiðsluerfiðleikar
  • Hjúskapur/sambúð
  • Hlutafélög/einkahlutafélög o.fl.
  • Hugverkaréttur/höfundaréttur
  • Innheimtur
  • Íþróttaréttur
  • Landbúnaðarréttur
  • Lausafjárkaup
  • Lögfræði fjármálafyrirtækja
  • Lögræði/lögræðissvipting
  • Mannréttindi
  • Neytendavernd
  • Opinber innkaup
  • Persónuvernd
  • Sakamál
  • Samkeppnisréttur
  • Samningaréttur/samningagerð
  • Samningurinn um EES
  • Sáttamiðlun
  • Sjálfbærni
  • Skaðabótaréttur/slysamál
  • Skattaréttur
  • Skipasala
  • Stjórnskipunarréttur/stjórnarskrá
  • Stjórnsýsluréttur
  • Sveitastjórnarréttur
  • Umhverfis- og auðlindaréttur
  • Upplýsingatækni
  • Útlendingar
  • Vátryggingaréttur
  • Veðréttur
  • Verktakaréttur/verksamningar og útboð
  • Vinnuréttur/vinnumarkaðsréttur


  1. ↑ Sigurður Guðmundsson (10. nóvember 2004). „Hver er munurinn á lögfræðingi og lögmanni?“. Vísindavefurinn. Háskóli Íslands. Sótt 8. apríl 2024.
  2. ↑ „Hvernig verður þú lögmaður?“. lmfi.is. Lögmannafélag Íslands. Sótt 8. apríl 2024.
  3. ↑ „Öflun málflutningsréttinda“. lmfi.is. Lögmannaflélag Íslands. Sótt 6. júlí 2026.
  4. ↑ „Lögmannalisti - Málaflokkar“. lmfi.is. Lögmannafélag Íslands. Sótt 6. júlí 2026.