1365
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1365 (MCCCLXV í rómverskum tölum)
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- Ólafur Pétursson lét af embætti hirðstjóra.
- Oddgeir Þorsteinsson var vígður Skálholtsbiskup. Hann kom þó ekki til landsins fyrr en árið eftir.
- Fædd
- Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 20. janúar - Lávarður Veróna var fangelsaður af bróður sínum sem einnig var lávarður borgarinnar.
- 3. mars - Orrustan í Gautaskógi í Svíþjóð. Albrecht af Mecklenborg vann sigur á liði feðganna Magnúsar Eiríkssonar og Hákonar Magnússonar. Magnús var tekinn til fanga og sat í varðhaldi til 1371.
- 6. mars - Konungsríkið Navarra og Konungsríkið Frakkland skrifuðu undir friðarsamning.
- 12. mars - Vínarháskóli var stofnaður af Rúdolf 4., hertoga Austurríkis.
- 12. apríl - Hundrað ára stríðið - Enski hertoginn Jón 6. í Bretaníu skrifaði undir friðarsamning við Karl 5. Frakklandskonung eftir 24 ára átök.
- 2. júní - Loðvík 1. Ungverjalandskonungur hertók norðurhluta Búlgaríu og styrkti tök sín á Balkanskaganum.
- 4. júní - Karl 4. keisari heilaga rómverska ríkisins var krýndur konungur efra og neðra Búrgunds.
- 27. júní - Pétur 2. konungur Kýpur og Amadeus hertogi Savoja héldu frá Feneyjum með 165 skip í krossferð til Egyptalands.
- 9. október - Borgin Alexandría í Egyptalandi varð fyrir árás Kýpurkonungs og Jóhannesarriddara. Yfir 20.000 borgarar voru drepnir og 5.000 seldir í þrælahald.
- 22. nóvember - Konungsríkið Danmörk og Hansasambandið sömdu um frið kenndan við Vordingborg.
- Fædd
- 25. júlí - U - kóreskur konungur
- Dáin